Allur pakkinn - bæjarins bestu!
Skólarnir okkar :)
Myspace
Klukkan
25.01.2008 20:51:41 / sigurz:*

Jæææææææææjjjjjjaaaaaaa !?!?!?!

Heyriði mig stelpur mínar ég er eiginlega ekki að nenna þessu lengur ha ?!?! ... hvað með ykkur ... sammála eða ? Ég allavegana ætla að segja mig úr þessari síðu og þetta var búið að vera gaman, en þetta er svona semí mikið slappt núna ?!?!?! ha ekki satt .... En ég er allavegana hætt í bili ! Takk fyrir mig :* love love :*:* <3 -Tinna S

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 10:36:42 / sigurz:*

Skólinn byrjaður !

jæja... þá er það byrjað enn aftur !

 

Skólinn byrjaður og allir á fullu að byrja að læra enn á ný. Ég er allavegana bara ánægð að vera byrjuð aftur og fullt af nyju /gömlu skemmtilegu fólki komið aftur sem er roooooosa gaman ! :D En þetta er fyrsti dagurinn minn og ég er í einhverju töflubreytingaveseni þannig að ég er að bíða núna eftir því að fá tíma hjá námsráðgjafa til að geta lagað töfluna mína og farið aftur í tíma !

En ég vona sko að einhver af hinum stelpunum komi nú einhverntímann með einhvað skemmtilegt blogg í bráð og að hún Hrund farið nú að gefa sér smá tíma í að setja inn þessar fáu myndir sem við stelpurnar tókum á GusGus og á áramótunum !

En segjum þetta gott í dag :D heyrust seinna :*:*

 

-Tinna- 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 17:33:33 / sigurz:*

Jól 2007

Hæhæ og Gleðileg jól öllsömul ! Frá okkur stelpunum í öllum pakkanum ;)

Ég ákvað að skella inn einni kveðju á ykkur elskurnar mínar og ég vona að þið hafið haft það sem allra best og hafið það gott það sem eftir er.

En svona fyrst að Jólin eru búin og ég hef eiginlega ekki haft mikinn tíma til að vera að blogga og vera mikið í tölvunni :P En ég ætla að segja ykkur smá frá því sem ég fékk :D

  • Ég fékk nýjan ipod
  • 2 nýja skó rosa flotta :D
  • Cintamani vesti
  • levis buxur
  • bol og 2 leggings
  • fullt af flottu snyrtidóti
  • allskonar skartgripi :D rosa fínt
  • Rúmföt
  • Sléttujárn
  • pening
  • og allskonar flott annað :D

En ég vil þakka rosalega vel fyrir mig og ég er rosalega ánægð með allt :* og vonandi hafa allir skemmt sér vel og haft það rosalega gott :D

En í gær þá var ég að spila með fjölskyldunni monapoli sem við fengum í möndlugjöf og ég grúttapaði :D haha en þetta var rosa gaman. En held að ég hafi sagt nóg í bili og vona að stelpurnar komi með einhvað skemmtilegt blogg fljótlega :D

 

 

 

-Tinna Jólastelpa :D:*:*


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 15:02:52 / hruola

ATH! :)

 

hey görls!

ég & þura vorum að spá í að við myndum hittast á kaffihúsi í kvöld, hvernig líst ykkur á ? látið mig vita sætu stelpur!

hrund


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 10:59:14 / sigurz:*

Búin í PRÓFUM !!!!!!! :D:D:D:D:D

Hæhæ ! :D                                                           

 Tinna mætt til leiks aftur :D... en allavegana þá langaði mig að blogga til að segja ykkur að ég er búin í prófum og er að fíla það feitt !!! :D:D Kláraði seinasta prófið mitt áðan og ætti þá að vera að kúra uppí rúmi og hvíla mig eins og margir mundu gera en ég bara get það ekki :S:P hehe held það sé c-vítamínið sem ég er byrjuð að drekka :D En allavegana þá vaknaði ég allsvakalega snemma í morgun útaf heimska símanum hans prófðir minns haha ... og svo var líka svo brjálað veður að maður gat valla sofið fyrir hávaða :S:P En mér skilst að þetta eigi að fara vesnandi en svo aðeins að róast seinnipartinn. En við vonum bara það besta ! ;)

 

  • En allavegana þá er ég búin í prófum og held líka hrund og erna og örugglega þura líka ég er bara ekki alveg viss :D en ég segi bara til hamingju við þá sem eru búnir ! :D:*
  • Ég er svo að fara í klippingu á eftir klukkan 4 :D hlakka smá til ;)
  • Svo ætla ég í kringluna með inga og kíkja á jólagjöf handa kæróinu hans :D
  • Svo ætla ég örugglega að skella mér bara í ræktina og svo veit ég ekki meir :P
  • kannski lita augabrúnirnar mínar því ég er búin að gera svo fínt við neglurnar mínar og svona allskonar :D
  • búin með allar jólagjafir nema handa stebba mínum og viggó kjána ! :D
  • líka búin að senda jólakort þannig að það er eins gott að ég fá einhver líka :D haha
  • Svo er jólaball FÁ á mánudaginn ! :D það verður örugglega fínt bara ...

En segjum þetta gott í bili og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar !! ;)

 Love á þig :*

 

Ein gömul og góð frá 85´ í fyrra ;) 

 -Tinna <3                                                               


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 14:28:21 / hruola

ótrúlega mikið hæ!

ákvað að gera eitt blogg hérna þó mig gruni að það séu einstaklega fáir gestir sem heimsækja síðuna een tinna verður allavega ein ánægð pía! :lol:

hef ekki frá miklu að segja .. Skólinn var eins & gengur & gerist bara frekar afslappaður síðustu dagana, mikið af bubble trouble með beggu pirruðu :D & enduðum með kósý litlu jólum í litlu vansköpuðu stofunni okkar sem sést ekki fyrir súlunni! Fullt af kökum & pakkar & Christmas Vacation, mmm læk it!

svoo er ég bara búin að vera í prófum á fullu, gengur ekkert of vel en þið vitið ;) get allavega ekki beðið þangað til þau eru búin! þá get ég loksins farið að jólast á fullu ! jei! hef allavega nóg til að hlakka til ..

  • 3 próf búin & 3 eftir!
  • 13 dagar í jólaballið!
  • 17 dagar til jóla, pakkar!
  • 9 dagar í Laddi sextugur!
  • man ekki meir ..

LOV IT!

jólaengill fyrir ykkur stelpur mínar ;)

hrund farin, bless bless!


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 21:56:10 / þura

Er ekki e-ð rangt við þetta?

 

 Ok einmitt núna er ég búin að vera á hálfgerðu letikasti í svona 2-3 tíma. Ég ætti eiginlega að vera að læra fyrir kafla próf í félagsfræði 203 en eins og ég lít á þetta þá bara nenni ég því ekki. Þetta fag mundu flestir halda úr mínum gamla skóla (Húsaskóla) að ég elskaði það, en því miður er það ekki. Kennarinn minn í þessu fagi dróg mig og mína bekkjarfélaga svo niður að það nennir nánast enginn að gera neitt nema þessir krakkar sem einhvernveginn eru bara náttúrlega gáfaðir a.k.a born with it og komast alltaf upp með það að ná prófunum án þess að læra neitt. Hvað er málið með það. En ég er ekkert að draga mig neitt niður ef ég skuli falla í þessum áfanga þar sem ég þarf ekkert að ná honum til að verða stúdent. Þykir leiðinlegt að segja þetta sambandi við kennarann í þessum áfanga en það er hva svona 35% fall hjá honum, hátt eða hvað?!? Hann er horbjóður.

Annars það er ekki ástæðan afhverju ég ætla að blogga. Það brennur eitt svo í mig að ég verð bara að tjá mig núna. Eins og ég sagði þá er ég í algjöru letikasti ligg hérna uppí rúmi með tölvuna mína að háma í mig mjólkurkex hehehe... En já ég er þessi manneskja sem geri nánast alltaf það sama þegar ég fer á netið skoða nokkrar blog.central síður hjá vinum, myspace-ast þó það eina sem maður gerir þar er bara að skoða fleiri síður hjá vinum og myndir og hlusta á lögin, you-tube sem er algjör snilld getur fundið allan andskotan af heimskulegum video-um sem láta manni líða vel sérstaklega þegar þú sérð frekar heimskt fólk þú hugsarðu með sjálfum þér kannski er ekkert að þér, kannski er ég ekki svona klikkuð eins og allir segja hahahah !!!, b2.is klassískt og svo má ekki gleyma blessuðu leikjanet.is síðuna sem maður fer alltaf á ef manni DAUÐleiðist svo eins og í félagsfræðitímum þá bjargar bubbles manni alveg klárt mál ;).

Ég fyrir algjörri tilviljun ákvað að skoða hvaða síður eru svona vinsælastar hjá b.c.is þar sem ég er búin að skoða nánast allt þetta sem ég taldi fyrir ofan og komin með hálf-ógeð af þeim... búin semsagt að skoða þær svona 110 sinnum ekkert breytist eða bara ekkert vekur mikinn áhuga hjá mér. Jæja ég fer inná b.c.is og skoða vinsælustu síðurnar og eitt nafnið þarna greip mig algjör stelpu-stelpan í mér sá þetta og hugsaði ég með mér kannski eru þetta stelpur á mínum aldri og ég hef rosalega gaman að hneykslast stundum útí hvað stelpur á mínum aldri gera.. ætla ekkert að segja hvað síðan heitir bara með virðingu fyrir síðu eigendunum. En jæja ég fer inná þessa síðu og skoða aðeins bloggin og það er semsagt endalaust af þessu DÆMI: OMG skilurru þússt hva ... :D::D:D:D GG, og svo gerði ég þetta og svo sagði hann og svo omg skilorru og svo .. og svo kom..svo fór ég og svo heim (you get the point). Allt í lagi þetta er pottþétt ekki síða með stelpum á mínum aldri ekki séns. Ég fer aðeins að skoða þetta betur og fer ég í dálkinn sem er um þessar stelpur og þá eru þetta 95 módel !!!!!!!! Afhverju... bara plís afhverju er 95 módel með eina vinsælustu síðuna á blog.central.is. Ég veit alveg að mín kynslóð (90-99) erum alveg netóð og allt það og já já kannski er undir 94 (módel) krakkar í stóru hlutfalli mestu bloggarar hér á b.c.is en sjít.. Eru etta ekki ábyggilega einhverjir perrar sem eru þarna úti að skoða þessar síður ég held það. Ekkert að segja að þessar stelpur séu kannski ekkert "vinsælar" ég veit ekkert um það en kommon það er ekki séns að þetta fari yfir 2500 (skoða síðuna) og eina fólkið sem er að skoða er fólk eins og ég forvitin og krakkar á þeirra aldri, kemur ekki til greina. Æji mér finnst bara e-ð svo rangt við þetta.... Ég var alveg með síðu þegar ég var í 7.bekk en eina fólkið sem ég vissi af væru að skoða þetta voru vinir mínir úr mínum skóla ekki neitt mikið krakkar í öðrum hverfum eða þannig.. í 7.bekk þá er maður meira bara með vinum sínum úr sínum skóla, seinna meir ferðu að hangsast með krökkunum úr hinum hverfunum og skólunum eða allavega var það þannig fyrir 5 árum... vóó 5 ár síðan ég var í 7.bekk.

En er ekki e-ð óheilbrigt að sjá stelpur í 7.bekk vera að halda "sleepover" útmálaðar, í push-up, minnstu hlýrbolum og litlum stuttbuxum ? Svo er fólk e-ð að hneykslast að það séu perrar þarna úti !?! Að skoða svona síður. Stelpur eins og þær bjóða uppá þetta. Auðvitað er ég ekkert að segja að allt svona nauðgunar mál og svoleiðis þeim að kenna, ALLS EKKI. Ég er bara að segja að þegar svona stelpur fara t.d. niðrí bæ á 17.júní eða menningarnótt og eru að missa sig því einhver gamall perri er að horfa á þær og jafnvel elta þær, mín spurning er það e-ð skrítið? Fyrsta lagi þá klæða þær sig eins og þær séu eldri, það er orðið í dag svo erfitt að sjá alvöru aldurinn hjá stelpum því við erum svo mikið í því að fullorðnast sem fyrst að við gleymum okkar aldri og svo er það bara mannlegt eðli hjá strákum/mönnum að glápa þegar þú bíður uppá svo mikið hold. Því já flestir strákar/karlar eru graðhestar og hugsa mikið um kynlíf ekkert að því gjörið þið svo vel. En stelpur plís passið ykkur í guðanna bænum KLÆÐIÐ YKKUR !!! Það er hægt að vera sæt og algjör "gella" án þess að vera í mini-pilsum og þrengstu bolum í heimi. Verið svolítið fágaðar. Hahaha.. ég er eins og gömul kelling...

 -þura-

p.s. Gangi öllum vel í jóla-prófunum :*

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 13:44:35 / sigurz:*

Stelpur þið sökkið blautann !!!!! :D

Hæ gettu hver er ????

 Já auðvitað er það ég Tinna Sigurz sem blogga :D hver annar ?!?! .....

En allavegana langaði mig að skella inn einu bloggi á þessa dauðu síðu og segja ykkur frá því að á fimmtudaginn varð hann faðir minn fertugur (40) og í kvöld þá ætlum við að halda uppá það með svaka teiti og filleríi og bara öllu sem hægt er að hugsa sér ! Eins og í gærkvöldi þá var ég sko alveg sveitt yfir því að gera jarðaber með súkkulaði og var einnig að læra þannig að þetta verður sko hörku veisla skal ég ykkur segja ! 

En ég vil lika varpa einni spurningu hér stelpur og skoðendur ..... Eigum við ekki bara að hætta með þessa síðu ??? Eða hvað finnst ykkur ? :|  Ég allavegana sé ekki fram á það að það sé einhvað mikið að fara að koma frá hinum stelpunum inná hérna :D haha þannig að ég ætla að reyna að bjarga þessu hérna eina ferðina enn og athuga hvað gerist ;)

  • Ég er komin inn í markaðsráðið hjá FÁ... Sem er ágætt
  • Þura bara horfið af yfirborðinu eða lætur hún bara aldrei í sér heyra ?!
  • Hrund og Bjöggi búin að vera saman í ár ! :D til hamingju með það :*
  • Það var rosa gaman hjá mér í Danmörku, keypti mér nú ekki mikið, en gat allavegana keypt mér einhvað.
  • Fór í tívolí sem var bara rosa flott :D
  • Kvefið að meika það þessa dagana ....
  • Kalda veðrið kannski aðeins of kalt ? 

Allavegana þá held ég að ég sé búin að segja nóg í bili.... nú ætla ég bara að fara að skella mér í ræktina og svo í sund :D þannig að ég segi bara bless í bili og njótið helgarinnar ;)

 

-Tinna :*:* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 10:56:22 / sigurz:*

DK

ÉG ER FARIN TIL DANMERKUR STELPUR MÍNAR SVO ÉG VONA AÐ ÞAÐ KOMIST EINHVAÐ VIT Í YKKUR OG ÞIÐ SKELLIÐ INN BLOGGI BARA SVONA UPPÁ SKEMMTILEGHEITIN :D ER ÞAGGI ??????

JÁ FÍÍÍÍÍNT ! JÁ SÆÆÆÆÆÆLL !!!!

Biddu er lægð yfir landinu eða.... Eða ertu kannski bara með klofinn góm ?!?!

Hvar eru þessir vitleysingar (þið stelpur :P) að smíða eldflaugar ?!?!

Jæja i´m out !

l8ter !

CYA !!! :frown::^):P:haha::whut::klikk::$:evil::cry::!:8|;):(:D8):S:lol::|:o:)

Love-love-love-love-love-love !

-Tinnsílænenkoff :klikk:


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 23:26:01 / sigurz:*

Tæpur mánuður eftir af skólanum ?!?! :D

Hæhæ :D mig langaði aðeins að blogga svona smá því að það er smá síðan það var gert síðast :P ... en allavegana þá ætla ég að skella inn einu stuttu og laggóðu :D

Allavega er búið að vera bara brjálað að gera hjá mér uppá síðkastið, búin að vera að vinna mikið um helgar, ótrúlega mikið af prófum og skilaverkefnum i skólanum og ég er bara liggur við að drukkna í heimalærdómi þessa vikuna :S Samt er svo mikið að gerast, eða allavega er 85 ballið hjá MS og ég er nú bara ekkert viss um það að ég komist því það er á fimmtudaginn og ég er að fara í 3 próf á föstudeginum :S en ég ætla að reyna mitt besta og vera þá kannski búin að læra allt um daginn og kvöldið ! :D en það er að segja ef ég fæ miða og það kemur allt í ljós á morgun ef að riddarinn minn á hvíta hestinum bjargar mér ! :D haha þú ert sko æði !

En nóg um lærdóm og e-h svona skólabull :P ....
 

 

Vildi líka segja ykkur frá Peruballinu sem var í seinustu viku á fimmtudeginum og það var alveg rosa stuð á því ! :D samt svona ágætlega mikið af rugli sem kom upp þar en vonum bara að það hafi verið lagað :P .... En Plugg´d voru allavega að spila og þeir voru nú bara nokkuð góðir :P En eftir ballið þá fór ég á nonnabita með Möggu og Stebba og svo bara heim að lúlla ;)

Svo vil ég líka minna ákveðna manneskju á það að við stelpurnar hérna erum farnar að hungra í matarboð ef ekki nema smá heimboð þarna þú !!!!! :D og ég vil sko engar afsakanir ! :D

En svona það sem er á dagskránni núna á næstunni er :

  • 85´ballið!
  • Matarboð hjá Þuru :D haha
  • Próf, próf, próf :S
  • DK með mömmu næstu helgi :D eða 15. - 17. nóv :D
  • Svo afmæli hjá Pabba helgina eftir það :D Fertugur kallinn :D
  • Svo að búa til afmælisgjöf með frænkunum handa pabba um helgina :D

Þá held ég nú að þetta sé bara komið gott fólk og ég ætla að halda aðeins áfram að læra og horfa svo á Desperate Housewives og skella mér svo í háttinn ! Er svona semí þreytt og þarf held ég á góðum svefn eftir það að hafa verið vakin klukkutíma fyrr í morgun en ég átti að mæta og hennt manni í sturtu ! Algör bömmer það ... Þannig að þá er ég búin að koma frá mér orðunum og vona að þið gerið það sama í skoðunum hérna fyrir neðan ! :D

Góða nótt og mér Þykir vænt um ..... ?!?! :klikk:

-Tinna-


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 16:33:54 / þura

Þuru blogg

Jæja nú er mánudagur og hvað það er gaman...

Vakna kl.8:50.. sef semsagt yfir mig.. æðislegt hoppa í föt og byrja að skafa af bílnum sínum þar sem blessaði jólasnjórinn er kominn.. fara inní kaaaaalda bílinn.. jiiii hélt ég mundi deyja þarna inní bílnum af kulda. Eeeen svona er það að búa á ÍSlandinu mikla.

Jæja þessi helgi fór í ágæta drykkju jisús minn eða kannski ekki öll helgin heldur bara laugardagurinn. Byrjaði á föstudegi að það er bara hin venjulega skólarútína. Ótrúlegt að önnin er að vera búin en ég er ekki búin að leggja stundatöfluna mína á minnið ekki nógu gott. Annars eftir skóla var skellt sér í vinnuna þar sem eeekkert var að gera þannig að ég og Raggi (einn af tveimur "celebum" sem vinna með mér, er í hljómsveitinni Bloodgroup mæli með að þið tékkið á henni á myspace goooood shit ;) ) styttum okkur stundir með að fara í keppni með tommustokk, hver gæti gert frumlegustu verurnar/hluti með tommustokknum.

Jæja ég fór bara að gera þetta basic kassa og tígul hahah.. og var mikið hlegið af mér hversu "frumleg" ég væri þá kom Raggi með hest og hús og allar þessu skemmtilegu hluti. Þetta var mjög gaman þar sem við fundum upp teiknimyndafígúru í leiðinni "Tommustokka-strákurinn"ÉG MÆLI MEÐ HONUM ahahahhahah !!!! Það var mikið hlegið (vara ykkur við að þetta er mesti aulahúmor sem við Raggi erum með.) Svo kom kallinn minn (Marit ég kalla hann bara kallinn minn, (hún þolir ekki þegar ég kalla Bjarna þetta ) ) og skellti sér svo í "mjólkurbúðina" hann hugsar mjög vel um mig hahah !!! En skrítið að hann sé ekki búinn að leggja á minnið hvernig "mjólk" ég vil.

Jæja þegar ég náði með minni þvílíkri sannfæringakrafti að fá Ragga til að gera upp fyrir mig í vinnunni því ég var að leggja útí sveitina a.k.a Búðardalur og átti eftir að taka allt saman það er að segja fötin, tannburstan (má ekki vera andfúl hahah) og allt draslið með því.

Keyrði ég bara heim og tók saman í tösku og svo kom Bjarni og við kíktum til hennar Ingu sem einmitt þá var AFMÆLISBARN DAGSINS !!! fyrir ykkur sem vissuð það ekki aumingjar. Þetta var krúttlegt lítið afmæli kökur og solleiðis dúllí snúllí. Jæja við keyrðum í hva svona 55 min. þegar við vorum komin uppí Borgarnes þar sem foreldra Bjarna eiga heima (já hann er sveitastrákur, var ekki nógu sátt með strákana hérna í borginni svo ég nældi mér í eitt stykki sveitagutta ;) ) Meðan Bjarni var úti með pabbalingsnum sínum að skipta um dekk á bílnum var ég inni með tengdó að slúðra hahah.. og fékk að sjá myndir af Bjarna þegar hann var lítill þetta var alveg einstaklega fallegt og þétt barn ef ég má orða það þannig. Dúllaaaa ... en komin greinilega í þann pakka að ég er búin að skoða barnamyndirnar með tengdó rosalega fljótt að gerast :P

Jæja eftir þetta skelltum við okkur af stað. Eftir ágætlega langa keyrslu vorum við komin í Búðardal.. ógeðslega veður rigning þar. Þið spurjið ykkur kannski hvar gistu þau?? þar sem Bjarni á ekki heima þarna og auðvitað ekki Þura.. Jæja svarið er einfalt Jóhanna sem by the way kynnti okkur (mig og bjarna) á fjölskyldu sem býr þar og þau voru svo yndisleg að leyfa okkur að gista þarna yfir helgina. Algjör æðibitar þessi fjölskylda. Við horfðum á nokkra Næturvakta þætti og svo var skellt sér í rúmið.

Daginn eftir vaknaði ég þegar Jóhanna hringir og segir við mig að við eigum að vera mætt uppí íþróttarhús (sem er svona 20-30 min í burtu) eftir hálftíma. Ohhhhh jæja ég drattaðist á lappir og einhvernveginn náði í Bjarna líka úr rúminu. Keyrðum af stað og þar hófst svokallaði fótboltamótið. Vorum þarna í svona ... 5 tíma eða svo að horfa á fótbolta mjög áhugavert hahah.. annars liðið mitt lenti í 4.sæti en hefði átt að lenda í 3.sæti bara svindlerí þar á ferð :P

Eftir þetta skemmtilega mót fórum við bara að liggja öll í leti (ég, Bjarni, Guðni og Jóhanna) þarf ekkert mikið að segja frá því. En svo vorum við svo sniðug að við skelltum okkur í pottinn eftir yndislega kvöldmatinn a.k.a kjúklingur með doritos pottréttur mmmm.. opnuðum okkar nokkra í pottinum meðan litla systir Jóhönnu spilaði á harmonikku fyrir okkur þetta kalla ég sveitarlífið ;)

Svo var farið í fyrirpartý í svona 7.mínútur þar til við fórum í rútuna sem keyrði á ballið. Mætt á staðinn þar sem flestir voru í lopapeysum og gúmítúttum.. þetta fáum við ekki að sjá í stórborginni.. getum alveg sagt að ég hló mikið af þessu borgarstelpan sjálf. Áður en maður vissi þá var maður orðin vel "hress" og dansandi það mikið að ég gat ekki dansað þurfti að setjast niður því ég var að drepast í hnjánum svo ég dansaði ekki eins mikið og ég hefði viljað. Var meiri í því að sitja þarna sötra aðeins og spjalla við local fólkið eða non local fólkið ég veit ekki alveg.

Daginn eftir var ég mjög hress en get nú ekki mikið sagt með hina hahahaha... Keyrðum heim með nokkrum "stoppum" því sumir aðilar voru ekki alveg í sínu fínasta. En annars um kvöldið þá fór ég á leikritið Hamskipti eftir Kafka.... mjög svo einstakt leikrit. Vestur-port er með þetta þau er náttla mjög svo góð en leikritið já mjög svo einstakt.

 

En já mánudagur.... 60s vika í skólanum þar sem það er 60s ball á fimmtudaginn á Gauk á stöng (meiri upplýsingar á borgari.is) þannig ég er að fara mæta í skólann í 60s fötum mjög svo gaman. En mjög gaman að heyra að ég ÞURAN sjálf er komin í Morfís liðið í Borgó !!!! Trúi þessu varla.. nú er bara harkan á þetta.

 

 

Annars hef ég ekkert sagt ykkur frá Danmerkur ferðinni þannig ég ætla bara punkta niður frá því.

  • Mikil sól og hiti þegar ég kom.. fannst eins og það væri sumar en nei það var byrjun október
  • Hótelið mjög svo krúttlegt og maður reyndi sitt besta að tala dönsku við alla.. tókst misvel.
  • Danir eru mjög "ýktar" týpur en einkenndist mest af úper-hnökkum.
  • Einnig var furðulega mikið af hjólum þarna, maður var frekar hræddur við fólkið á hjólunum heldur en bílunum.
  • DANSKUR MATUR ER EKKI GÓÐUR ég borðaði varla neitt af matnum þarna.. það sem ég setti upp í kjaftinn í mér var mest peanutbutter m&m og coke.
  • Já ég var líka með strepta-kokka þannig þar kom líka inn að ég gat ekki borðað mikið alltof mikill sársauki í hálsinum.
  • Fundirnir með svíunum gengu ekki sem best þær voru svona smá kærulausar en...
  • Það tókst allt upp á endanum og okkur gekk þvílíkt vel fólk að hrósa okkur hægri vinstri tilbúin að gefa okkur marga milljónir fyrir "project-ið" okkar... future ideas....
  • Já það var hrósað manni mikið sérstaklega frá einum aðila sem sagði ef ég man þetta orðrétt : Engin furða að þér sé svona heitt XXX, Þura er hjá þér.... (þetta náttla var sagt á ensku) en já ég .. bara jiiiiii...
  • Norsarnir greinilega rosalega ákafir í hrósum/hustlinu... fékk að heyra það endalaust hvað maður væri fallegur, exotic mál????, fallega húð, falleg augu.... og svo framvegis var orðið svolítið þreytandi.....
  • MIKIÐ verslað í H&M !!!!!!!!! ég og Hildur mistum okkur í gleðinni.
  • DANSKUR MATUR VONDUR ENN OG AFTUR OOOHH !!!!
  • Odense mjög stolt af H.C Andersen, ég væri ekkert á móti að búa þarna eitt sumar þetta er sætasti bær sem ég hef séð og fólkið svo kurteis.
  • Danskir sölumenn ekki alveg tilbúnir að tala við mann á ensku.. hvað er það???
  • Nik & Jay klárlega málið í Danmörku !!!!!
  • MIKIÐ af sætum strákum í Odense .. úffff
  • Flugvélamatur er vondur ooooohj... hvað er að ykkur Iceland air við erum ekki svón sem étum hvað sem er....
  • Þakka innilega fyrir mig !!! Jói, Eyjó, Hildur og Eygló þið voruð ÆÐISLEG !!!
Jói, ég, Hildur og Eyjó

-þura is out-

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 20:36:00 / sigurz:*

Tinna Bloggar ...

Hæhæ .. ég ákvað að skella inn einu bloggi svona til að lífga kannski aðeins uppá þessa elskulegu síðu okkar stelpnanna ;)

En það sem mig langaði að segja ykkur frá er bara það sem er búið að vera að gerast í skólanum og öllu þessu venjulega :P ... en ég er ný komin úr Haustfríi núna sem var í tvo daga, fimmtudag og föstudag sem var ekkert smá notarlegt og þægilegt að komast í smá frí. En á miðvikudaginn seinasta var búningakeilan í FÁ sem er alltaf einu sinni á ári og það var svona frekar skrautlegt :D ... liðið sem ég var í með stebba, danna, hössa og hyrti og við vorum feimleikafólk ... hver gæti átt a' hafa fengið þá hugmynd .. hummmm kannski stebbi ? En við vorum allavegana svaka flott og sérstakega Hjörtur :D haha en við stóðum okkur rosalega vel en ég veit nú samt ekki hvaða sæti við vorum í eða ekki einu sinni hver vann því að það voru allir svon semí fullir þarna :D haha en svaka stuð. Svo eftir það fóru allir á klúbbinn og þar var dansað, drukkið og skemmt sér.

En um helgina þá fór ég og stebbi í party til Haffa og Hafrúnar því að Gulli kom til íslands og er að fara heim á morgun, en við skemmtum okkur alveg ágætlega vel þar og fórum svo í partyrúnt með Danna og félögum hans, en skelltum okkur svo bara heim :D svo þegar við komum heim skelltum við okkur í freiðibað :D hahaha en Takk fyrir mig kids þetta var skemmtileg helgi :*:*

Svo á morgun verður opnuð ný síða hjá okkur FÁ-ingum og það verður opnunarhátið á morgun í skólanum, svaka stuð og allir bíða spenntir eftir nýju síðunni ;)

  • Þura komin heim frá Danmörku
  • Stebbi búinn að losna við spangirnar uppi fyrir þá sem ekki vissu:P
  • www.dci.is
  • Nýtt slúður...
  • og vonandi koma nýjar myndir inná fljótlega :D

En þá er það komið gott í bili hjá mér og ég vona að stelpurnar komi nú með einhvað krassandi mjög fljótlega:D ... kannski Þura með smá blogg um Danmerkurferðina ... ekki ?

 

-Tinna :*:*


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 10:38:39 / sigurz:*

Sælaaaaar

 

STELPUR ÞIÐ ERUÐ ÖMURLEGAR Í SLÚÐRINU ?!?!?!

 

 

Langaði bara að koma þessu á framfarir ;)

Love you :*:*:*

 

 

 

-Tinna :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 15:29:19 / þura

Já halló

Olrætí ég ætla að koma með smotterí hérna.
Þannig skólinn á fullu, held að 7 eða 8 vikan sé bara byrjuð af skólanum. Mér finnst bara eins og það hafi verið í gær að ég steig mitt fyrsta skref í menntaskólann hahaha !!! Það er nú bara ár síðan. Anyways þá er ég bara búin að vera á fullu að læra svona standa mig misvel í sumum áföngum en þetta mun koma no doubt about that, þarf bara leggja meira á mig.
Svo er það leikfélagsnefndin ætlum okkur að setja upp söngleik allt að gerast. Einnig má ekki gleyma að ég skellti mér á ræðunámsskeið til að athuga hvort það sé e-ð varið í mig. Skella sér í Morfís vona það besta bara.
 
Eins og flestir vinir mínir vita þá er ég flutt í 104 !! Sem er mjög skrítin tilfinning. Ég sem var búin að búa í Grafarvoginum í 16 ár. Flestir finnast bara ekkert við það að flytja en ég var algjör taugahrúga. Þetta var ekkert gaman. Vildi ekkert flytja, ég sem vissi ekkert hvernig það væri að flytja.
 Eina það góða við það er að ég er í stærri herbergi en ég var í í Vallarhúsum hahah ;) Jú jú þetta er mjög kósý staður og allt það .. ég bara á eftir að finna mig hérna.
 
hahah !! Þetta kom upp þegar ég google-aði 104 Rvk.. bara ef þetta væri rétt ;) 
 
Heyrðu svo er ég að fara skella mér til DANMERKUR á laugardaginn. Fer til Óðinsvé með þremur öðrum krökkum úr U.R.R a.k.a Ungmennaráði Reykjavíkur. Þetta verður mjög skemmtilegt. Mikill undirbúningur fyrir þessa ferð, löng kvöld að búa til ræður og hreinskrifa þær fram og aftur og mikill hlátur (svefngalsi). Allaveganna þá er allt komið á hreint THANK GOD hélt að við mundum aldrei klára þetta dæmi. Við erum nefnilega með svona "work shop" þar sem fólk nokkur hundruð talsins eru að fara að koma og hlusta á okkur úr U.R.R og einnig tvær stelpur frá Malmö og tvær frá Gautaborg má ekki gleyma þessum fjórum fegurðardísum. Við erum semsagt að fara að tala um Ungmenni í samfélögum norðurlandanna, sem að mínu mati er skemmtilegt umræðuefni.
Það er búið að stimpla svo ungmenni í samfélaginu á svo hræðilegan hátt að við séum bara til vandræða og vitum ekki neitt. Þetta er náttúrlega bara rugl útí eitt. Okkur er ekki sama um samfélagið og við viljum hafa áhrif. Það er auðvitað einhver partur af okkur sem eru bara hálfvitar og eru nákvæmlega sama en það er svo lítill hluti. Það er eins fólk og sérstaklega fjölmiðlarnir vilji bara líta á vondu hliðarnar við okkur en ekki góðu. Ef það kemur e-ð gott þá er það bara lengst útí horni kannski á mogganum sem nánast enginn les.
 
Fallega Óðinsvé ;)
 
Eitt annað ég verð að segja frá leiðinlegasta degi lífs míns !!!!
MÁNUDAGURINN 1.OKTÓBER.
Byrjar þannig að ég mæti of seint í skólann, sef aðeins yfir mig en kennarinn minn er yndi og gerði ekkert í því. Heyrðu allt í lagi svo er í gati eftir þennan tíma. Fer ég útí bíl og þá bara HVAR ER BÍLLINN MINN ?!?!?!?!?!? Var ekki bara búið að draga bílinn minn í burtu takk fyrir. Á stað sem allir leggja og hefur aldrei verið gert neitt útaf þessu fyrr en núna TÝPISKT !!!
Nú jæja ég fer uppá skrifstofu til að fá smá upplýsingar hvert ég ætti að hringja og fara og þannig. Nei kerlingarnar vildu bara ekkert hjálpa mér sitja bara þarna á rassgatinu fyrir framan tölvuskjáinn sem by the way er svona 3 cm frá andlitinu þeirra því þær sjá ekki shit !!! Djöfull var ég pirruð var eins kurteis og setti upp þetta saklaus andlit en þær hlustuðu ekkert á mig.
Hringi í pabba og hann ekkert sáttur. Sækir mig og þar fara orð á milli sem voru ekki falleg get ég sagt punktur. Sæki bílinn minn og þurfti ég að borga bíðið.. bíðið...
10.700 KRÓNUR !!!!!!!!!!!!
Er fólk e-ð verri í hausnum. díses kláraði peninginn minn á kortinu greeeat.
Jæja þá keyri ég heim til mín alveg í rusli útaf öllu þessu og hvað gerist. Er ekki bara keyrt á mig aftanárekstur. Ég stoppa bílinn er að fara opna hurðina og þá brunar gaurinn í burtu !! og ég næ ekki númerinu á bílnum. Jæja ég keyri heim og bara brotna niður mamma sofandi og ég hef klukkutíma til að drulla mér að sækja um nýtt vegabréf því ég er eins og sagði fyrr að fara til DK. Við keyrum uppettir og konan sagði að ég þurfti að borga auka fyrir hraðferð svo ég gæti fengið vegabréfið á réttum tíma ekki bara það þá þurfti ég að hringja í pabba því báðir forráðamennirnir mínir þurftu að skrifa undir þar sem ég er ekki orðin sjálfráða og þegar það átti að taka mynd af mér þá mátti ég ekki vera með spöngina mína því það lítur út eins og hattur or som... maður má náttla ekki vera með hatt á vegabréfinu en kommon spöngin er svona 2.cm díses, hárið mitt var ógeeeeeeð og myndin er hræðileg.
Þessi dagur gat ekkert versnað oooooohhh... nema þegar ég fór í Bónus til að kaupa mat handa hundunum mínum þá lenti ég nærðum því aftur í árekstri !!! ÉG Í 110 % RÉTTI TAKK FYRIR !! Ohh.. þetta var öööömurlegur dagur.
Einíveis þarf að fara bjóða ykkur stelpunum heim til mín, smá matarboð vonandi bráðlega. Verður samt ekki fyrr en ég kem heim frá DK.
Jæja mitt blogg komið elska ykkur blómin mín :*:*:*:*
 
-þura- 

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 12:59:27 / hruola

Superbad!

hrundar bloooogg!

hæ litlu rassgöt.

tók stóra ákvörðun rétt í þessu um að blogga í staðinn fyrir að gera íslensku ritgerðina sem mér er mjög Illa við! brr .. en þessi vika er búin að vera stutt & sjúklega fljót að líða.
Og það sem er búið að bjarga því er auðvitað að við þurftum ekki að fara í cooper testið í leikfimi, frí í tvöfaldri rekstrarhagfræði, Viljinn, mynd í spænsku, danirnir í heimsókn, allir að hleypa fyrr & fleira. Pottþétt uppáhalds skólavikan mín .. nema begga litla mín veeik, láttu þér nú batna stelpa!

Svo er ég búin að gera allskonar skemmtilegt, unnum miða á Superbad í gær & djööööfull er það steikt mynd, haha shii :lol: .. svo skelltum við okkur á klúbbinn sem ég hef bara aldrei séð svona fullan, fuullt af fólki & stuuuð.

en mér datt í hug að skrifa smá um það sem við stelpurnar erum með á prjónunum úr því að við erum svona lélegar í blogginu svo hér kemur smá annáll ..

ErnaBjörk

er útum allt þessa stelpa. Stundar Verzlunarskólann af kappi, bæði náms - & félagslega séð. svo er hún auðvitað alltaf í boltanum líka & æfir með meistaraflokki kvenna í Fjölni & ætlar að halda því áfram í vetur eftir því sem ég best veit! hún ætlar ekkert að vinna heldur tekur lífinu með ró & slappar af með vinunum í staðinn

TinnaSigurz

heldur áfram í FÁ í vetur, engin breyting á því & er voða dugleg þar. Hún er svo að vinna aðra hverja helgi í Intersport með mér .. eða reyndar á hinni helginni eeen ég meina. Svo er hún víst bara á leiðinni til Danmerkur í nóvember að versla & einhver flott heit á stelpunni. Hún er ennþá með stebba sínum & fara að detta í ár núna í október held ég bara & svo hittir hún okkur stelpurnar inn á milli ;)

ÞuríðurDavíðs

Það er bókstaflega allt að gerast hjá henni þuru okkar núna. Stelpan er nýflutt í 104 .. jája, maður á nú eftir að fá boð í nýju íbúðina, bíð spennt þura! Svo var hún að kaupa sér bííl, já, stelpan komin á Yaris & brunar á honum um götur bæjarins. Svo er hún á fullu í skólanum og leiklistarnefndinni þar & having the time of her life þar eftir því sem ég best veit ásamt því að hitta kæææró! nóg að gera hja henni ..

enívei, þarf að gera ritgerð .. góða skemmtun um helgina & þura bloggar næst !!

love

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Dagsetning
9. febrúar 2012
Glasgow !
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1773 dögum